Ég fór í vikuferð til Noregs síðustu viku.
Ætla að segja aðeins frá henni
Ég læt hnitin á stöðunum sem ég fór á í sviga fyrir aftan nafnið svo þið getið farið á google maps og kíkt á það
Laugardaginn 13. mars fór ég ásamt útivistarhópnum í IHÅ til Noregs. Þar áttum við að sofa í snjóhúsum og bara lifa úti í náttúrunni í 5 daga.
Okkur var skipt í 3 hópa
'Orange Team': fólk sem var meitt. Gekk ekki mikið og eyddi mestum tímanum inni í húttu.
'Blue Team': Svona normal grúppa. Meðal mikil áreynsla o.s.f.v.
'Pink Team': Extreme grúppan, gekk mest af öllum og fór erfiðasta leiðangurinn, ég var í þessu liði.
Við lögðum af stað frá skólanum kl 13:30 á laugardaginn. Frá Árósum fórum við til Hirtsals sem er aðeins lengra en Álaborg(Aalborg).
Þaðan fórum við með ferju til Larvik. Hef aldrei komið í svona stóra ferju/skip. Hún var með Tax free shop og helling fleira.
Þegar við vorum komin til Larvik fórum við með Rútu til Numedal. Þar var Lýðháskóli sem við gistum í fyrstu nóttina.
View Larger Map
Á sunnudaginn fórum við í 'Team Pink' með minibus til stað sem heitir Breidset( 60.193097,8.88535 ). Við vorum 6 nemendur og 3 kennarar. Þar tókum við bakpokana og skíðin og byrjuðum að ganga. Við fórum 10km þann dag á gönguskíðunum.
Við stoppuðum á stað sem heitir Lufsjå( 60.160278, 8.787778 ). Þar var svona lítil hútta/kofi. Það var lítil kabína inní henni og þannig hituðum við snjó til að hafa vatn að drekka.
Við sváfum í henni þá nótt eftir að hafa haft það notalegt með því að borða, spila, drekka kakó og tjilla.
Næsta dag vöknuðum við snemma og fórum út að gera snjóhús eða svona igloo ( Mynd ). Gerðum 1 igloo og svo grófum við holu í snjóinn og grófum svo til hliðana þannig að þetta var svona eins og kojur í snjónum ( Mynd . Mynd2 ). Við fórum svo í húttuna aftur til að éta og spila og fleira svo fórum við út til að sofa. Þegar við fórum út var himininn ótrúlega störnubjartur. Ég hef aldrei á ævi minni séð svona mikið af stjörnum. Ótrúlega flott. Hefði sofið úti ef það hefði ekki verið -17° kuldi um kvöldið og ég veit ekkert hve kalt var um nóttina.
Ég svaf í iglooanum þá nótt en við vorum 3 þar. Hin 6 sváfu í 'kojunum'. Sem betur fer var ég ekki þar því þau vöknuðu næsta dag með 5cm lag af snjó á svefnpokunum sínum þrátt fyrir að hafa næstum lokað alveg fyrir gatið.
Eftir góðann svefn úti í iglooanum vöknuðum við um morguninn, fengum okkur morgunmat, tókum saman dótið okkar og byrjuðum að ganga.
Við gengum 25km til staðs sem heitir Daggrø ( 60.028889, 8.981111 )
Þar hittum við 'Team Orange'. Þau höfðu ekki gert mikið annað en að búa til snjóhús og hanga í húttunni. Við vorum dauðþreytt eftir 25km göngu svo við fórum snemma að sofa ogvsváfum í snjóhúsi sem 'Team Orange' höfðu grafið þá nótt.
Næsta dag lögðum við af stað kl 3 um daginn. Þá gengum við 8km. Við hittum 'Team Blue' á leiðinni á staðinn þar sem við ætluðum að sofa. Þau voru búin að labba síðan um morgunin og ætluðu að komast til Daggrø. Við töluðum smá við þau og héldum svo áfram.
Eftir að hafa labbað 8km þá settum við upp 'camp'. Við tjölduðum risatjaldi sem einn af kennörunum var með. Ég gróf sæti fyrir okkur til að sitja á, á meðan við borðuðum við varðeld. Aðrir söfnuðu eldivið, aðrir grófu svefnpláss og fleira.
Eftir að hafa étið sátum við, við varðeldinn og tjilluðum. Svo var einn af kennurunum með maísbaunir sem hún notaði til að gera poppkorn. Það var algjör snilld.
Ég endaði svo með að sofa úti undir berum himni á sætinu við varðeldinn með svefnpokann minn. Það snjóaði í svona 30mín þegar ég ætlaði að sofa en svo hætti það og þá sá maður stjörnurnar. Ótrúlega flott að sofa með stjörnurnar fyrir ofan mann.
Um morguninn vaknaði maður, fékk sér morgunmat og gerði sig tilbúinn að ganga 10km. Við komumst að loka húttunni sem heitir Øvre Fjellstul ( 59.94562, 9.09309 ) nokkuð snemma um daginn, í kringum 1 eftir 10km göngu.
kl 3 fóru kennararnir út og bjuggu til leik fyrir okkur. Þetta var semsagt þríleikar, við spiluðum 1 á móti 1.
Fyrsta keppnin var að sviga. Við áttum að sviga framhjá skóflum(notuðum það í staðinn fyrir stangir) niður brekku. Við byrjuðum hlið við hlið og einn fór vinstra megin við fyrstu skófluna en hinn hægra meginn. Sá sem ég keppti við hefur verið á gönguskíðum mjög lengi svo ég átti lítinn séns. Ég náði forskoti í byrjun en datt svo. Þá beygði hann framhjá mér til að klessa ekki á mig og þá dreif ég mig upp og hljóp í markið á skíðunum og vann þar með fyrstu keppnina.
Önnur keppnin var svona hindrunarhlaup. Þar áttum við að stökkva yfir bekk( Mynd ), fara í kollhnís( Mynd ), hoppa 2 sinnum 180°( Mynd ) og fylgja einhverjum ákveðnum hring.
Einn byrjaði að fara réttsælis og hinn fór rangsælis og svo mættust þeir. Eftir hringinn þurfti maður að reyna að hitta sem flestar flöskur frá 5m færi. Maður fékk 3 tilraunir. Ef maður hitti engar þá þurfti maður að hlaupa 10m og hringa tré sem var þarna 2svar sinnum ( Mynd ).
Ef maður hitti eina þá þurfti maður að hringa tréð 1 sinni og ef maður hitti tvær þá gat maður farið beint í næsta verkefni. Það var að ganga upp smá hól og renna sér ( Mynd )
Það voru engar reglur svo þegar við mættumst hoppaði ég niður á fæturnar hans og tók af honum annað skíðið( Mynd ).
Þannig fékk ég smá forskot og auðvitað vann, eins og íslendingi einum er lagið.
Síðasta keppnin var að hlaupa á nærbuxunum 70m að vatninu sem var þarna við húttuna, fá fötu af ísköldu vatni yfir sig og hlaupa svo til baka. Mynd-Útskýring . Mynd2 . Mynd3 .
Eftir þetta fórum við inn, borðuðum og höfðum það notalegt að spila á gítar, syngja og drekka kakó.
Við vöknuðum kl 6 um morguninn næsta dag því við þurftum að ganga 17km fyrir kl 12. Borðuðum morgunmat, gerðum okkur klár og byrjuðum að ganga um korter yfir 7.
Við gengum til Veggli Fjellstue( 60.042222, 9.1525 ) og biðum þar eftir strætóinum til að sækja okkur. Þar tókum við hópmynd sem þið getið séð á facebook.
Með strætónum fórum við aftur til Numedal lýðháskólann og fórum þaðan í sund og fengum hádegismat sem kennararnir elduðu. Svo kl 3 lögðum við af stað til baka til Århus.
Við vorum komin heim kl 2 um nóttina.
Þetta var ótrúlega góð lífsreynsla og að ganga rúmlega 70km á 5 dögum á gönguskíðum var rosalega erfitt en samt skemmtilegt. Er að pæla í að kaupa mér gönguskíði á Íslandi.
Takk fyrir mig
Linkar:
Lufsjå:
Lufsjå Info
Lufsjå Info2
Lufsjå Info3
Daggrø:
Daggrø Info
Daggrø Info2
Daggrø Info3
Øvre Fjellstul:
Øvre Fjellstul Info
Øvre Fjellstul Info2
Øvre Fjellstul Info3
Veggli Fjellstue:
Veggli Fjellstue Info
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
Flottar ferðasögur!
ReplyDelete