Thursday, March 11, 2010

DK Túr (26. - 28. feb)

Fór í óvissuferð fyrir 2 vikum síðan með Outdoor hópnum í skólanum í eina helgi.

Fórum á föstudegi og komum aftur á Sunnudegi.

Við hittumst fyrr um vikuna og ræddum um ferðina og svo var okkur skipt í 3 hópa. ég var í 6 manna hóp en hinir hóparnir voru 5 manna. Outdoor grúppan er stærri en bara 16 en það voru einhverjir veikir og svo framvegis. Svo var okkur gefið blað með einhverjum hlutum sem við áttum að taka með.

Hluti af listanum var:

Bakboki - minnst 60L
Hnífur (gott að ég tók með mér vasahnífinn minn)
Svefnpoki
Dýnu til að sofa á
Regnheld yfirklæði
Flís undirföt
Handklæði og sundföt (datt í hug að við myndum fara í saunu eða heitann pott eftirá)

og helling af öðru til að fylla 60-70 lítra bakpoka

P.S. það var bannað að taka með sér: Mat, nammi, peninga, síma, klukku eða eitthvað rafmagnsdót(omg enginn iPod)

Fengum úthlutað gönguskíðum, -skóm og -stöfum og svo bara að byrja að pakka.

Auðvitað byrjar maður ekki að pakka 3 dögum fyrir brottför.Engin heilvitur maður myndi byrja að pakka fyrr en á deginum sem maður fer.
Svo ég pakkaði á föstudaginn og gerði mig tilbúinn að mæta í skólastofu kl 16:00.

Þangað komum við öll og það fyrsta sem var sagt við okkur var að fara úr öllu nema flísundirfötunum, leggja þau á bakpokann og horfa á, á meðan einhverjir kennarar gjörsamlega rifu allt úr til að tjekka hvort það væri einhver með nammi eða eitthvað á sér.
Ég var ekki með neitt á mér en sumir voru teknir með síma, úr og nammi.

Eftir þetta var okkur sagt að raða öllu aftur í töskurnar, og ég sem var búinn að pakka öllu svo vel :( þurfti að troða öllu í töskuna aftur.

Eftir að hafa pakkað öllu aftur í töskuna sögðu kennararnir að það var einn úr hvorum hóp sem þurfti að skilja eftir bakpokann sinn, en mætti velja 3 hluti sem liðsfélagarnir gætu tekið með í sýnum bakpokum.
Eina stelpan í hópnum bauð sig fram og valdi að taka með sér bakpoka, dýnu og tannburstann sinn.

Þegar það var ákveðið var liðunum sagt að mynda beina línu og halda í næsta liðsfélaga. Svo var látið á okkur svona augnlepp, eða hvað sem þetta kallast þegar fólk getur ekki sofið nema það sé alveg svart, þannig að við sáum ekki neitt.
Okkar lið var 'team pink' svo við fengum bleika augnleppi.

Eftir það vorum við leidd í rútu og þá hófst ferðin.

Það sofnuðu allir í rútunni. Hefur eitthvað með það að gera að það var bundið fyrir augun okkar.
Eftir það sem ég held að hafi verið 1 og hálfur til 2 tímar vorum við vakin upp. Það var myrkur og við vorum í einhverjum litlum bæ.

Kennarinn sagði að við myndum fá fyrsta hópverkefnið okkar hér. Þegar hann sagði þetta sá ég bíl keyra framhjá með kerru fulla af kanóum. Trúði nú varla að það hefði eitthvað með okkur að gera þar sem við vorum öll fullklædd fyrir kulda en ekki það að blotna.

Við áttum að skipta okkur í 2 jafnsterka hópa og annar þeirra myndi róa með kanóanum niður á(eða stórann læk) en hinn hópurinn átti að fara aftur í rútuna sem myndi keyra á staðinn sem við áttum að sigla og svo áttu þeir að sigla til baka. Við silgdum niður ána/lækinn og héldum að þetta myndi taka 5mínútur. Komumst að því seinna að hver ferð tók rúmar 30mínútur. Hver hópur fór 2 ferðir, fram og til baka.


Eftir þetta fórum við í rútuna og settum á okkur augnleppana. Þegar rútan stoppaði fórum við út og tókum með okkur bakpokana okkar. Svo var okkur sagt að labba á einhverjum vegi þangað til við myndum sjá. Fyrst fór einn hópur á meðan hinir biðu í einhverjar 10mín. Minn hópur var síðastur af stað.

Við löbbuðum í rigningunni heila 7km þar til við komum á stað þar sem við fengum mat. Banani og 2 rúgbrauð. Ég hélt að þetta væri bara smá snakk en svo myndum við borða eitthvað gott seinna en þetta var víst kvöldmaturinn okkar.


Á þessum stað gerðum við helling af þrautum. Ein þeirra var að við áttum að fara yfir litla á. Kennararnir voru búnir að binda stálreipi við sitt hvorn endan á ánni. Svo áttu við að fara í klifurbelti og renna yfir á hinn árbakkann. En.... Við áttum að gera það þannig að allir nema einn úr hópnum voru með bundið fyrir augun. Okkur tókst það á rúmlega 45 mínútum.


Svo fórum við aftur í rútuna sem var komin til að sækja okkur.

” Jæja nú förum við að sofa” hugsaði ég, þar sem ég sá á rútuklukkunni að klukkan var orðin rúmlega 1 um nóttina. Komst að því seinna að klukkan var biluð, 3 tímum og sein. Svo stoppaði rútan og við vorum send út í 5.5km göngutúr kl 4 um nóttina. Fengum kort og okkur var sagt að komast á ákveðinn stað, fengum ekki að vita hvar við værum. Fundum loks einhver merki um hvar við vorum og byrjuðum að labba.

Komumst loks á svefnstaðinn okkar kl um það bil 5 og steinsofnuðum þar í svona útiskýlum sem skýla manni fyrir rigningu.


Við vorum vakin kl 9 eða hálf 10 um morguninn. Okkur var sagt að pakka í bakpokana og svo fengum við ’morgunmat + hádegismat’. Það voru 2 gulrætur og 2 rúgbrauð.

Eftir það fórum við í ýmsar þrautir; m.a. að renna kanó niður brekku(bobbsleða style), gladiator keppni og ratleikur með korti og gps tæki. Gladiator leikurinn var semsagt þannig að allir hóparnir mynduðu einn stórann hring. Tveir kepptu í einu inn í hringnum og var látið huge húfu á höfuðið á þeim svo maður sá ekki neitt. Svo fengum þeir húllahring sem var búið að binda helling af litlum bjöllum við. Þá áttum þeir að fanga andstæðinginn með því að ná honum inn í húllahringinn sinn. Íslendingurinn vann auðvitað.


Eftir einhvern tíma fórum við aftur í rútuna og þar fengum við 1 epli á mann því maður var orðinn ótrúlega svangur. Rútan keyrði smá spöl og svo fórum við út með bakpokana og gönguskíði. Okkur var gefið kort sem var merkt inná hvar við vorum og hvert við áttum að fara.

Fyrst var andskoti leiðinlegt að labba á gönguskíðum svona langa leið, en svo lærði maður á þetta og þá varð þetta ’pís of kake’. Samtals voru það eitthvað um 4.5km.

Eftir þetta komumst við á staðinn þar sem við tjölduðum og átum. Loksins fengum við heitann mat. Hópurinn skipti sér verkum, ég var settur í að tjalda með 2 öðrum og hin 3 bjuggu til mat. Maturinn var eldaður úti með einhverjum útileigugræjum.

Eftir matinn sem smakkaðist eins og eldaður á 5 stjörnu veitingahúsi(held að það hafi eitthvað með hungrið að gera) vorkenndu kennararnir okkur öllum svo hrikalega, því veðrið sem var svo leiðinlegt, grenjandi rigning, vorum öll rennandi blaut. Vill benda fólki á að ’blød’ þýðir mjúkur en ekki blautur.

Svo kennararnir hleyptu okkur inn í svona sumarbústað sem var með lítilli kabínu þar sem við gátum hitað fötin okkar. Svo komu kennararnir með kakó og smákökur og fleira. Mjög ’hyggeligt’. Þar sögðu kennararnir hverjum hóp að ákveða hvort við vildum hafa morgundaginn ’vild eller mild’ , semsagt villt eða millt. Held að allir hóparnir hafi valið villt.


Morguninn eftir fengum við að borða og vorum svo send í 25mínútna göngu með bakpokana og eftir það fengum við að vita afhverju við áttum að taka með okkur sundföt.
Við áttum semsagt að hlaupa í sjóinn. Einn úr hópnum hljóp 60metra, næsti 50m, svo 40, 30, 20 og 10.
Ég endaði með að taka 40metra eftir að hafa tapað í blað skæri steinn uppá 50m.
Mér hefur aldrei verið jafn kallt á ævinni. Þegar ég var kominn 40m útí var sjórinn næstum kominn upp að brjóstinu. En eftir þetta klæddi ég mig í fötin aftur og varð bara nokkuð hlítt þar sem hitamismunurinn var nokkuð mikill.


Eftir þetta biðum fórum við heim til Árósa þar sem við fórum í einhvern ratleik og svo einhverjar klifurþrautir. Fínt að vera búinn að æfa klifur í næstum heilt ár fyrir þetta :)


Mér hefur aldrei á ævinni verið jafn kalt, verið jafn blautur eða svangur. En samt var þetta ótrúlega gaman.
Þetta var semsagt ’undirbúningsferð’ fyrir vikuferð til Noregs sem ég fer í núna næsta laugardag, þann 13.mars.

Nóg komið af bloggi í bili. þarf að byrja að undirbúa mig í að pakka.

1 comment:

  1. Flott ferðasaga. En fyrir hvað er verið að greiða skólagjöld? Allavega ekki fyrir matinn í óvissuferðunum :-)

    ReplyDelete